miðvikudagur, 17. október 2012
Greinar, haustlykt og sumarbústaður
Loksins fór ég í
greinaleiðangur. Búið að vera rigning hérna í bústaðnum og því hef ég skotið
því svolítið á frest síðustu daga. En dagurinn í dag er búin að vera þekkalega
þurr svo ég hefði enga afsökun lengur. Því miður fann ég ekki akkúrat
trjátegundina sem ég var að leyta að og ég er sko svo langt því frá að vera með
tegundirnar á hreinu, tré er nánast bara tré í mínum þekkingarbókum, fór ég
bara og fann mér greinar sem voru tiltölulega beinar og sveigjanlegar. Vopnuð
klippum fékk hver greinin á fætur annari að falla í vaðið og hreinsuð hálf
deyjandi gul laufblöð af herlegheitunum. Ég safnaði saman einum 20 greinum og
hófst svo handa við að sveigja og beygja og flétta saman í góðann krans.

Hérna er ég búin að flétta saman tvennslags greinum, annar er laufblaðalaus í grænum lit, hinn er úr einhverjum krækklóttum smágreinum sem Hanni fann og ég sveigði saman á mettíma. Bíð svo eftir að laufin falli af eða þorni. Báðir fallega heimagerðir og ég ánægð með dagsverkið. Þessir fá svo að bíða þess að leyfilegt sé að jólaskreyta í byrjun des.
Eftir góðann útitíma var komin einhver hrollur í mig og því ekki úr vegi að skella í eina haustlega
gulrótarköku handa okkur strákunum, Hanni er í vinnunni og keyrir héðan og kemur svo eftir miðnætti og fær sér nú yðulega bita af því sem matreitt og bakað hefur verið yfir daginn (og unglingarnir eru ekki búnir að gadda í sig). Það er svo dásamlegt svona þegar haustið er komið af einhverri alvöru að gera sér heitt kakó og gæða sér á kryddaðri nýbakaðri köku. Eflaust þykja flestum fátt haustlegt við gulrótarköku því gulrætur eru auðvitað fyrsta uppskera á vorin en mér finnst hún eiga betur við haustið, held það sé vegna kryddsins sem er í henni, kanill og púðursykur. Þessi uppskrift sem ég gerði í þetta sinnið kemur frá danskri Amo hveiti uppskriftabók sem ég fann hérna í einni búðinni í Hals og er vel til þess fallinn að gera í sumarbústað þegar maður er bara með handþeytarann við hendina. Það þarf líka ekkert sérstakt krydd eða neitt óvenjulegt í hana, bara þetta venjulega grunnkrydd sem maður að sjálfsögðu tekur með sér í svona bústaðaferðir, lyftiduft, natron, salt og kanil.
Hér kemur innihaldið í gulrótarkökuna:
275 gr. Hveiti
300 gr. Púðursykur
2 dl olía
4 egg
½ tsk. Gróft salt
2 tsk. Kanill
1 tsk. Vanillusykur
1 ½ tsk. Lyftiduft
2 tsk. Natron
375 gr. Rifnar gulrætur
Ef vill og er til þá má setja 50 gr. Af rúsínum og 35 af Valhnetum út í uppskriftina
300 gr. Púðursykur
2 dl olía
4 egg
½ tsk. Gróft salt
2 tsk. Kanill
1 tsk. Vanillusykur
1 ½ tsk. Lyftiduft
2 tsk. Natron
375 gr. Rifnar gulrætur
Ef vill og er til þá má setja 50 gr. Af rúsínum og 35 af Valhnetum út í uppskriftina
Aðferðin er svona
sáraeinföld: Sykur, egg og olía er þeytt saman, þurrefnin eru sigtuð (eða
göffluð eins og ég geri*) saman og hrærð varlega út í eggjablönduna og síðan er
gulrótum og ef hitt er með hrært varlega saman. Sett í sandkökuform eða 26 cm
springform og bakað í 45 mín við 185 gráður.
![]() | |
ekki er nú flókið að skella í eina köku |
Í kremið er svo notað 200 gr. Rjómaostur, 50 gr. Flórsykur og rifinn börkur af
einni sítrónu og safinn úr sömu sítrónu, smá rjóma til að hræra út í og gera
kremið léttara og að auki smá vanillusykri bætt út í.
Eftir að ég setti inn þetta innlegg prufaði hún Inga vinkona mín að baka kökuna og þurfti mun lengri tíma í sínum ofni en hér segir. Mínum ofni, eða réttara ofninum í bústaðnum, dugði þessar 45 mínútur en þess ber auðvitað að geta þegar maður bakar að allir ofnar eru misjafnir og þvi er uppgefinn bökunartími alltaf bara til viðmiðunar. Besta aðferðin til að finna hvort svona kaka er fullbökuð er að stinga gaffli, hnífsoddi eða þar til gerðum bökunarpinna í miðjuna og sjá hvort áhaldið komi hreint til baka, sé deigklessa ennþá þá þarf að baka örlítið lengur en sé áhaldið hreint er kakan tilbúin. Inga gefur kökunni toppeinkunn :-).
![]() | |
Gulrótarkakan tilbúin |
*Að gaffla nota ég þegar þarf að sigta þurrefni. Í stað þess að nota venjulegt sigti þá tek ég kaffal og hræri með honum í gegnum þurrefnin þar til sjáanlegir klumpar eru úr sögunni. Sparar tíma og uppvask á sigtinu sem er svo ósköp leiðinlegt verk. Martha Stewart notar þetta trix og ég fékk að láni þar.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Hildur
- Unknown
Vinsælast
-
Datt í hug þegar ég var að fara yfir myndirnar mínar og sá þessa að þó það sé ennþá nokkuð í jólin þá er akkúrat núna tíminn til að safn...
-
Stjörnumunstrið komið á niðursuðudósina Sáraeinfalt en smá undirbúning þarf áður en farið er að hamra á dósinni. Verð að segja það að...
-
Síðustu vikur hef ég skoðað hundruðir af híbýlum, stórum og smáum, gömlum og nýjum, fallegum og ljótum og eiginlega allt þar á milli. Við f...
Flokkar
- DIY (7)
- endurvinnsla (6)
- epli (2)
- Haust (1)
- húsgögn (3)
- hönnun (6)
- Ítalskt (1)
- jól (2)
- kaffi (1)
- marmilaði og mauk (2)
- Matur (4)
- myndir (2)
- sól (1)
- uppskriftir (4)
Knúið með Blogger.
1 ummæli:
Takk fyrir þetta með að gaffla :) Ömurlegt að sigta. Inga Björk
Skrifa ummæli