sunnudagur, 14. október 2012

Náttúrulegar hugmyndir...fyrir jólin

Þar sem ég sit núna í sumarhúsi út í skógi og horfi út um gluggann á öll tréin hér fyrir utan dettur mér í hug að nú ætti ég auðvitað að nota tækifærið og ná mér í smávegis greinar í jólaskraut. Ég hef verið dugleg að safna í sarpinn á vappi mínu um vefinn, allra handa hugmyndum af handverki og hönnun sem mér þykir flott og langar að spreyta mig á. Þennan krans t.d. langar mig agalega mikið í og ég veit að það er ekkert mál að fara út í búð og kaupann, það er bara langt svo í frá að vera eins skemmtilegt, auk þess sem ánægjan við það að gera eitthvað sjálfur í höndunum er svo dásamleg. Alla veg í ár ætla ég að búa þennan til. Þennan krans er svo hægt að skreyta og nota að sjálfsögðu allt árið um kring, bara skipta út skrautinu sem fer á hann. Ég lofa að þegar ég er búin að gera þennan og jólaskreyta hann tek ég myndir og set hér inn.




Ég veit að það er bara október, en eins og ég skrifaði í póstinum Eitt lítið getur gert margt stórt þá er um að gera að nota haustið til að undirbúa fyrir jólin, fara í skógarferð og týna það sem til fellur út í náttúrunni.
Það þarf ekkert alltaf að hlaupa út í búð og kaupa alla skapaða hluti og ég tala nú ekki um hve það er dásamlegt að gera hýbíli sín persónuleg með eigin handverki.

Þessi uppstylling er líka afar einföld en færir náttúruna alveg inn í hús. Meira að segja mestu klaufar ættu að geta gert svona, klippt niður greinar og sett í glervasa. Ég sé líka alveg fyrir mér að í stað keypttra vasa væri smart að nota glerkrukkur undan mat, eða þessháttar, og til að "fela" skrúfganginn mætti vefja hampgarni, fallegum borða einhverju tilfallandi utan um. Held það sé meira að segja bara flottara. Ekki skemmir að endurvinna allar glerkrukkurnar sem falla til á hverju heimili.
En øeg læt þetta duga í bili, verð að fara út að höggva tré.

0 ummæli:

Blog Archive

Vinsælast

Flokkar

Knúið með Blogger.
Follow Me on Pinterest