Uppskriftir

Til að byrja með ætla ég bara að skella öllum uppskriftunum mínum, sem koma inn á bloggið, hér á þessa síðu, án þess að vera að flokka þær eitthvað. Sé svo hvernig best er að hafa þetta eftir því sem kemur meira inn og þá fer ég í meira svona flokkun og þægindi.  Kannski fæ ég svo þig til að aðstoða mig við að finna út hvernig er best að hafa þetta.

Ég þarf auðvitað ekkert að taka það fram að við eldamennskuna þarf að vera ást og ástríða til að maturinn smakkist sem best, það smitar svo mikið út í allt sem maður gerir. Einnig hef ég þar fyrir reglu að láta matargestina jafnvel sitja og taka þátt, horfa á og spjalla á meðan ég er að matbúa þegar ég fæ gesti, þá einhvernveginn þykir gestunum maturinn svo afskaplega góður á bragðið.

Eplasmjör

Innihaldið er eftirtalið:
  • 1,5 kg af blönduðum flysjuðum og kjarnahreinsuðum eplum, skornum í bita
  • 350 gr. af fljótandi hunangi (hér notað Acacie)
  • 200 gr. sykur (mæli með hrásykri, gefur skemmtilegra bragð)
  • 1 tsk. kanill
  • 1/2 tsk negull
  • 2,5 dl epladjús (ég sleppti því eplin voru mjög safamikil)
Aðferðin er svona sáraeinföld:
Allt innihald er sett í pott, suðan látin koma upp og hrært í. suðan lækkuð og látið malla í smá stund eða þar til eplin hafa meirnað og hægt er að pressa þau. Þá er makuð/smjörið látið malla í um hálftíma eða þangað til það hefur þykknað.
Sett í hreinar krukkur og geymt í ísskáp þangað til uppurið. helst í kæli í 7 til 10 daga, en ef þetta er eins hjá ykkur og hér á mínu heimili þá er Eplasmjörið löngu búið fyrir þann tíma. Himneskt á ristað brauð, á nýbakað bollur eða á pönnukökurnar. Það skemmir svo ekki að setja þetta í sæta krukku með þessum merkimiða sem ég bjó til og sem þú getur vistað og prentað út.


Öðruvísi Lasagne að hætti Hrafnhildar


Innihald

Bechamel sósa:
70 gr. smjör
tvær msk hveiti
2- 3 bollar mjólk
salt
nýmalaður svartur pipar
hálf múskathneta, fínt rifin

Einnig er hægt að kaupa bechamel sósu frá Hunt´s og setja rifið múskat útí

Aðferð á sósu
Smjör brætt í potti og hveiti stráð yfir og hrært og soðið við mikðlungs hita í um 2 til 3 mínútur, eða þangað til hveitið hefur soðið saman við smjörið. Síðan er mjólkinni hellt út í slatta í einu og hrært vel á milli. Kryddað eftir smekk.

Tómatsósa: Giada notar tilbúna Marinara sósu
2 stór laukur, saxaður smátt
1 stór heill hvítlaukur eða 3 til 4 rif af venjulegum hvítlauk, saxað smátt.
1 rauður chilli, fræhreinsaður og saxaður smátt, hér má setja smá af fræum með ef vill sterkt eða sleppa ef þannig liggur við.
Ólífuolía þannig að þekji botninn á þykkbotna potti
2 dósir af hökkuðum niðursoðnum tómötum (gefur mesta bragðið að nota úr dós en má alveg nota ferska en þá þarf að flysja.
salt, pipar, oregano og 1 msk af púðursykri (alls ekki setja meira því það á ekki aðfinnast sætubragð en þetta gefur ákveðna fyllingu í sósubragðið)

Aðferð á tómatsósu:
Laukur, hvítlaukur og chilli er svitsað í olíunni  í góðar 5 mín en má alls ekki brenna svo hitinn er meðal.
Tómatarnir settir út í, hitinn hækkaður ögn og suðan látin koma upp, þá er hitinn aftur meðal og látið malla í klukkutíma. Tómatar verða að fá að sjóða vel saman.
Kryddað eftir smekk og voila sósan er tilbúin.

Rjómafylling

Innihald:
400 gr. rjómaostur Ricotta ostur
1 egg
Bolli af rifnum parmesan osti
2 til 3 bréf af hráskinku og eitt bréf af beikoni skorið í litla bita prosciutto skinka
einn poki af fersku spinat eða hálfur poki af frosnu (þá látið þyðna og vatn kreyst vel úr)
Salt og svartur pipar eftir smekk

Aðferð við fyllingu:
Öllu hrært vel og vandlega saman

Þetta er því miður ekki hægt að kaupa tilbúið en er svo einfalt að gera að það ætti ekki að standa í veginum.

Lasagneblöð

Innihald ef gert sjálf, annars kaupa kassa af tilbúnum Lasagne noodles (þessi með krulluðum hliðum)
400 gr. 00 hveiti
4 egg
klípa af salti

Aðferð við pasta:
Allt sett í matvinnsluvél og hrært þar til blandað vel saman og síðan sett í plastpoka og geymt í alla vega klukkutíma. Pastavélin dregin fram og lasagneblöð flatt út í löngum bunum, höfð frekar mjó en löng þar sem þeim er rúllað utanum fyllinguna.
Ef keypt þarf að lina þau upp í saltvatni í 0rstutta stund, ekki fullsjóða.

Samsetning:
Í ofnfast stórt smurt mót er bechamel sósunni hellt í botninn þannig að þekji. Lasagne blöðunum er svo rúllað utanum ca 3 msk af rjómafyllingunni og sett í mótið án þess að rúllurnar snerti hver aðra. Gerðu eins margar rúllur og fyllir fatið og efni er til í. Tómatsósunni er síðann skóflað yfir hverja rúllu, góðri sleif af sósu og yfir það er svo stráð rifnum mozzarellaosti eða öðrum góðum rifnum osti. Sett í 200 gráðu heitann ofn og bakað þar til osturinn er orðinn vel gylltur.

Blog Archive

Vinsælast

Flokkar

Knúið með Blogger.
Follow Me on Pinterest