miðvikudagur, 2. janúar 2013

Allt svo nýtt en þó svo gamalt

Nú verðið þið aldeilis að afsaka mig. Hér er búið að vera alveg hreint brjálað að gera og ótrúlegt hvað verkefnin hrannast alltaf upp á sama tíma hjá manni. Allan desembermánuð vorum við afar upptekin að pakka niður og flytja mála gömlu íbúðina og skila henni af okkur og á sama tíma var ég á námskeiði 6 tíma á dag og aul þess að rembat við að gera vefsíðu fyrir danskt fyrirtæki og var komin á deadline með hana. Það væri synd að segja að mér hafi leiðst en mikið sem við vorum orðin úrvinda af þreytu kvöldið sem allt dótið var komið inn í nýja húsið. Af þessum sökum kom ekki stafur frá mér hér á síðuna og það er auðvitað alveg agalegt.

En hvað um það nú er aðeins farið að hægjast um og búið að taka upp úr allflestum flutningskössum, þó eitthvað sé enn eftir, og koma hlutunum í þokkalegt ástand. Við héldum alla vega hátíðleg jól, borðuðum einhver býsn og slöppuðum af inn á milli.



Nú erum við s.s. hætt að vera fjölskyldan í Skeljagarðinum og erum komin á Merkisstaði og líður alveg ljómandi vel. Það er vel rúmt um okkur enda húsnæðið rúmlega helmingi stærra og eitthvað svo dásamlegt að koma dótinu sínu fyrir þar sem það fær að njóta sín. Ýmislegt hefur líka verið tekið upp sem ekki sá dagsbirtuna á gamla staðnum og því er maður að uppgötva gamla hluti alveg upp á nýtt.

Nýja húsið sem hefur fengið nafnið "Merkisstaðir"
Enn er samt heilmikið eftir að gera, við að koma sér fyrir, þó ég hafi verið ótrúlega dugleg við að tæma kassana og skipa fjölskyldumeðlimunum (aðallega Hanna) fyrir hægri vinstri að setja nú þessa hyllu upp eða skrúfa þessa skrúfu. En þetta kemur hægt og býtandi, sanniði til.
Sýnishornahillan mín
Nú er ég t.d. komin með skrifstofu sem er ekki um leið geymsla, er bara skrifstofan mín og nú er ég búin að raða allskonar dóti upp sem ég hef verið að gera í gegnum tíðina, bæði professional og á meðan ég var í skólanum. Það var gaman að skoða ofan í kassana og rifja upp tilefnið til verksins og enn skemmtilegra að geta loksins notað þessa hluti til að fá innblástur við önnur verkefni. Mig vantar þó ennþá að búa til möppu með vefsíðunum, en það kemur.

Ég þarf líka að verða mér úti um nokkra myndaramma, svona í amerískri stærð. Við vorum nefnilega á markaði í vor og duttum niður á gömlu teiknimyndablöð. M.a. var þar að finna danska útgáfu af MADS, sem ég elska og að sjálfsögðu valdi ég mér nokkur blöð með flottur forsíðum. Þeim ætla ég að koma í ramma og skreyta skrifstofuveggina með, en á meðan ég leita að römmunum þá fá nokkur blöð, ásamt nokkrum enn eldri nótnablöðum, sem ég fann í Genbrugsbúð Bláa krossins sl. vetur, að skreyta nýsprautuðu korktöfluna sem eigendur hússins skildu eftir og ætluðu að henda, því hún var ferlega ljót, en ég tók að mér og gerði fína með smá svörtu spreylakki.

MAD blöðin og nótnaheftin sem ég er búin
að sanka að mér á ýmsum mörkuðum og
endurvinnslubúðum
En svona smátt og smátt er að fæðast ágætis vinnuaðstaða, undir súðinni á efri hæðinni. Ég á eflaust eftir að snúa öllu við og breyta hundrað sinnum en núna er hún alla vega svona og ég er voða ánægð með þetta. Það er einlægur ásetningur minn að fara aðeins meira út í endurvinnsluhluti og þarna eiga eftir að töfrast fram einhverjir skemmtilegir hlutir, sem ég að sjálfsöðgu kem svi til með að skrifa um hérna á blogginu.
Skrifstofan mín að taka á sig mynd













Þið verðið að afsaka þessa ljótu ramma utan um myndirnar, er að reyna að finna út hvað er eiginlega í gangi. En á meðan hafið það gott.

0 ummæli:

Blog Archive

Vinsælast

Flokkar

Knúið með Blogger.
Follow Me on Pinterest