fimmtudagur, 25. október 2012
Með breytingum koma oft góðu hlutirnir
Já fljótt skipast veður í lofti og miklar breytingar í vændum hjá heimilisfólkinu í Skeljagarðinum. Nú skal pakka öllu dótinu saman og flytja sig um set. Við erum svo sem ekkert að fara langar leiðir en það þarf nú samt að raða lífinu ofan í kassa, pakka saman minningunum um veru okkar hér sl. fjögur ár. Allir voða spenntir að komast í meira pláss, vera svolítið sér og geta teygt aðeins úr fótleggjunum.
Ég fyrir mitt leyti er mest spenntust fyrir eldhúsinu. Það er heljarinnar stórt með góðum skápum og fullt af borðplássi. Sem þýðir að þá get ég bakað, eldað og prufað meira, allar þessar uppskriftir sem liggja í dvala á bak við eyrað og hafa beðið eftir sínum tíma. Oh það verður svo gaman hjá mér. Já og vonandi ykkur líka því að sjálfsögðu þýðir það að ég skrifa fleiri uppskriftir hér inn.
Fram að flutningum þarf ég að spara, spara voða mikið, það er ekki ódýrt að flytja og því þarf ég að hafa allar klær úti og vera extra sniðug með stærsta útgjaldalið heimilisins, matarinnkaup og matargerð. Það er ekki auðvelt þegar maður býr með 2 unglingum sem eru að stækka í það óendanlega og borða eftir því.
Ég kaupi mikið af ávöxtum handa þessum úlfum mínum og það passar reyndar ljómandi vel við akkúrat núna, búandi í landi þar sem epli vaxa á trjánum og núna er þeirra úppskerutími og því epli ódýrt fóður, fyrir úlfa. Já ok, ég er enn og aftur að tala um epli en af því að ég gerði Eplasmjörið um daginn, og þá varð til svo gríðar mikið af afskurði/flusi sem fór í ruslið, þá fór ég að pæla. Já annars, Eplasmjörið var algjört hit hjá öllum sem hafa smakkað og því þarf ég að búa til annan skammt og hafa hann stærri í þetta sinnið.
En alla vega þetta með afskurðinn. Ég mundi eftir að hafa horft á þátt í sjónvarpinu, River Cottage. Mjög skemmtilegir matarþættir um að vera sjálfum sér nógur og hvað maður getur fengið út úr litlu með því að gera hlutina eins ikið sjálfur og hægt er. Já aftur að hugmyndinni og því sem ég mundi eftir.
Þarna er s.s. kona (man ekki nafnið á henni fyrir mitt litla) sem er búin að sulta allt sitt líf og hún bjó til sultuhlaup af afgöngum og afskurði og akkúrat þegar ég sjá þáttinn hugsaði ég að þetta væri auðvitað bara brilljant.
Nú er ég s.s. búin að prufa þetta, með eplaafskurðinum mínum og þvílíkt sælgæti á skonsuna og ristaða brauðið.
Þar sem ég var aðallega að fást við epli í þetta sinnið var bragðið eftir því en ég átti líka enda og flus af gulrótum sem fengu að fljóta með í pottinn. Til samans varð þetta um 1 kg. af kjörnum og flusi sem ég setti í pottinn, 400 ml af vatni, 350 gr. af hrásykri og þegar það var búið að sjóða vel saman setti ég sultuhleypi (duft, 2 tsk, blandaðar saman við 2 tsk sykur) og hrært rólega út í sjóðandi afskurðinn. Lét þetta malla í 5 mínútur. Allt sett í grysju yfir góðu íláti og látið leka vel af og þrýst svona til að ná nú öllum safanum og bragðinu úr þessi og ofan í sultukrukkuna. Eins og alltaf þá nota ég könnu til að setja á glösin, þá fer aldrei sulta og hlaup útfyrir og gerir subbulegt. Þetta passaði í tvær 300 ml. krukkur. Ég spái því að hlaupið fái ekki að vera lengi í þeim, ef ég þekki mína menn rétt.
Endilega prófið þetta og það má að sjálfsögðu nota afskurð af allra handa góðum ávöxtum og grænmeti sem eru tilvalin til að sulta og fá bragðið úr.

![]() |
Hver vill ekki svona heimalagað gúmmelaði á brauðið sitt? |

Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Hildur
- Unknown
Vinsælast
-
Datt í hug þegar ég var að fara yfir myndirnar mínar og sá þessa að þó það sé ennþá nokkuð í jólin þá er akkúrat núna tíminn til að safn...
-
Stjörnumunstrið komið á niðursuðudósina Sáraeinfalt en smá undirbúning þarf áður en farið er að hamra á dósinni. Verð að segja það að...
-
Síðustu vikur hef ég skoðað hundruðir af híbýlum, stórum og smáum, gömlum og nýjum, fallegum og ljótum og eiginlega allt þar á milli. Við f...
Flokkar
- DIY (7)
- endurvinnsla (6)
- epli (2)
- Haust (1)
- húsgögn (3)
- hönnun (6)
- Ítalskt (1)
- jól (2)
- kaffi (1)
- marmilaði og mauk (2)
- Matur (4)
- myndir (2)
- sól (1)
- uppskriftir (4)
Knúið með Blogger.
0 ummæli:
Skrifa ummæli