fimmtudagur, 11. október 2012

Öðruvísi lasagne

Einn af uppáhalds réttum Jónasar Elís er Lasagne, heimagert lasagne, og þá skiptir það eiginlega engu máli hvað er innan í bara honum þykir Lasagne gott. Verulega gott.
Í gær var s.s. unglingurinn að kvarta yfir móður sinni, sagðist aldrei fá MAT. Hrummh! (Marge Simson style) heyrðist nú í móðurinni og hún hugsaði sitt.

Þetta þýðir auðvitað, og það veit hann, að þegar ég heyri svona þá elda ég eitthvað uppáhalds handa honum. Í dag er það sumsé Lasagne. Ekki þetta venjulega samt, þetta með kjöthakkinu, heldur mín "sérstaka" ítalska útgáfa af Lasagne með loftþurrkaðri skinku, spínat og rjómaostfyllingu. Eitthvað sem ég uppgötvaði þegar ég var að horfa á þátt með Giada De Laurantiis á Food network. Að sjálfsögðu er ég búin að laga hana aðeins til því ég get aldrei gert alveg eftir uppskrift og líka er stundum ekki alveg fáanlegt í næstu búð það sem fer í hennar útgáfu. ég skal samt láta Giada innihald fylgja með með rauðu, þannig að þið getið prufað fínni uppskriftina hennar, en aðferðin er sú sama, skinkan og osturinn er bara helmingi dýrari og fæst ekki alls staðar, það sem ég geri þó fram yfir hana er að ég bý til mína eigin tómatsósu, hún notar keypta.
Margt sem er í minni uppskrift gæti ykkur þótt dáltið bras (finnst eflaust einhverjum) því eins og ég hef marg sagt, vil ég reyna að gera sem allra mest frá grunni eða sem því nemur en það er alveg hægt að notast við keyptar vörur til að flýta fyrir og auðvelda. Ég mæli þó sterklega með því að þið venjið ykkur á að búa til báðar sósurnar því það jafnast ekkert á við bragðið og að búa til tómatsósuna sjálfur er eitthvað svo ótrúlega róandi. Ekki skemmir ef þú skenkir góðu rauðvíni í glas og sýpur á á meðan sósan mallar. Þessi sósuuppskrift er líka grunnur að t.d. pizzasósu (þá maukuð með blandara) spaghettisósu eða bara ítalskri tómatsósu og er alger klassík og ég nota hana hrikalega oft.

Eruð þið orðin svöng?

Öðruvísi Lasagne að hætti Hrafnhildar


Innihald

Bechamel sósa:
70 gr. smjör
tvær msk hveiti
2- 3 bollar mjólk
salt
nýmalaður svartur pipar
hálf múskathneta, fínt rifin

Einnig er hægt að kaupa bechamel sósu frá Hunt´s og setja rifið múskat útí

Aðferð á sósu
Smjör brætt í potti og hveiti stráð yfir og hrært og soðið við miðlungs hita í um 2 til 3 mínútur, eða þangað til hveitið hefur soðið saman við smjörið. Síðan er mjólkinni hellt út í slatta í einu og hrært vel á milli. Kryddað eftir smekk.

Tómatsósa: Giada notar tilbúna Marinara sósu
2 stór laukur, saxaður smátt
1 stór heill hvítlaukur eða 3 til 4 rif af venjulegum hvítlauk, saxað smátt.
1 rauður chilli, fræhreinsaður og saxaður smátt, hér má setja smá af fræum með ef vill sterkt eða sleppa ef þannig liggur við.
Ólífuolía þannig að þekji botninn á þykkbotna potti
2 dósir af hökkuðum niðursoðnum tómötum (gefur mesta bragðið að nota úr dós en má alveg nota ferska en þá þarf að flysja.
salt, pipar, oregano og 1 msk af púðursykri (alls ekki setja meira því það á ekki aðfinnast sætubragð en þetta gefur ákveðna fyllingu í sósubragðið)

Aðferð á tómatsósu:
Laukur, hvítlaukur og chilli er svitsað í olíunni  í góðar 5 mín en má alls ekki brenna svo hitinn er meðal.
Tómatarnir settir út í, hitinn hækkaður ögn og suðan látin koma upp, þá er hitinn aftur meðal og látið malla í klukkutíma. Tómatar verða að fá að sjóða vel saman.
Kryddað eftir smekk og voila sósan er tilbúin.

Rjómafylling

Innihald:
400 gr. rjómaostur Ricotta ostur
1 egg
Bolli af rifnum parmesan osti
2 til 3 bréf af hráskinku og eitt bréf af beikoni skorið í litla bita prosciutto skinka
einn poki af fersku spinat eða hálfur poki af frosnu (þá látið þyðna og vatn kreyst vel úr)
Salt og svartur pipar eftir smekk

Aðferð við fyllingu:
Öllu hrært vel og vandlega saman

Þetta er því miður ekki hægt að kaupa tilbúið en er svo einfalt að gera að það ætti ekki að standa í veginum.

Lasagneblöð

Innihald ef gert sjálf, annars kaupa kassa af tilbúnum Lasagne noodles (þessi með krulluðum hliðum)
400 gr. 00 hveiti
4 egg
klípa af salti

Aðferð við pasta:
Allt sett í matvinnsluvél og hrært þar til blandað vel saman og síðan sett í plastpoka og geymt í alla vega klukkutíma. Pastavélin dregin fram og lasagneblöð flatt út í löngum bunum, höfð frekar mjó en löng þar sem þeim er rúllað utanum fyllinguna.
Ef keypt þarf að lina þau upp í saltvatni í 0rstutta stund, ekki fullsjóða.

Samsetning:
Í ofnfast stórt smurt mót er bechamel sósunni hellt í botninn þannig að þekji. Lasagne blöðunum er svo rúllað utanum ca 3 msk af rjómafyllingunni og sett í mótið án þess að rúllurnar snerti hver aðra. Gerðu eins margar rúllur og fyllir fatið og efni er til í. Tómatsósunni er síðann skóflað yfir hverja rúllu, góðri sleif af sósu og yfir það er svo stráð rifnum mozzarellaosti eða öðrum góðum rifnum osti. Sett í 200 gráðu heitann ofn og bakað þar til osturinn er orðinn vel gylltur.


Njótið með góðu grænu salati og auðvitað glasi af rauðu, þó ekki fyrir börnin ;-)

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þetta er nú eitthvað sem ég verð að prufa. Svakalega girnilegt hjá þér Hrafnhildur :-)
Kv. Systa.

Blog Archive

Vinsælast

Flokkar

Knúið með Blogger.
Follow Me on Pinterest