miðvikudagur, 10. október 2012
Hvað er ljótt og hvað er fallegt?
Við sjáum hlutina svo ótrúlega misjöfnum augum og er það vel. Sem betur fer er smekkur manna eins misjafn, eða þar um bil, eins og mennirnir eru margir (lesist hér smekkur kvenna). Það er alla vega það sem ég komast að fljótlega eftir að ég kynntist manninum mínum, hans smekkur er ekki alltaf alveg í takt við minn.
En eins og ég skrifaði á Fecbókina þá sýnir þessi örsaga hvað maður getur upplifað skemmtilega hluti og upplifað þá öðruvísi en sinn heittelskaði.
Þetta skrifaði ég á vegginn minn:
Nú eru s.s. nokkrir dagar liðnir og þetta skrifborð, sem ég hef kallað kvikindið, ætlar að verða sagan endalausa hér á miðju stofugólfinu. Er s.s. búin að pússa það og skella fyrstu umferð á það og á meðan lakkið (Trip trap eldhúsborðplötulakk) var að þorna fékk ég hugmynd. Þar með stoppaði allt!
Einhvernveginn fékk ég þá flugu í höfuðið að til að láta kvikindið passa nú reglulega vel inn í stofuna þá væri alveg upplagt að setja höldur á skúffurnar.
En eins og ég skrifaði á Fecbókina þá sýnir þessi örsaga hvað maður getur upplifað skemmtilega hluti og upplifað þá öðruvísi en sinn heittelskaði.
Þetta skrifaði ég á vegginn minn:
"Það getur stundum borgað sig að vera ótrulega þolinmóð og þrjósk, það sýndi sig í dag. Þeir sem þekkja manninn minn vita hve ótrulega fastheldinn hann getur verið og ef eitthvað er ekki bilað (lesist hér ljótt) þá þarf bara ekkert að laga það. Nú s.s. þá hef ég alla okkar hjónatíð tekið undir mig hýbíli okkar og lagað þau eins og ÉG vil (orð eiginmannsins) og hvurgi gefið eftir eitt einasta horn fyrir hann og til að bæta gráu ofan á svart þá ræð ÉG sko öllu hvernig hlutirnir eiga að vera.
Jájá þið haldið það kannski að þetta sé þannig að ég ráði öllu alveg eins og minn maður, en þannig er það nú bara alls ekki, ég hef bara hærra.
Vegna þessarar meintu frekju minni hefur hann þarna þessi þrjóski staði maður krafist þess að skrifborðið sem hann fékk í fermingargjöf fylgi með okkur hvert í heiminum sem við búum og ég ekki fengið að snerta það. Nú var maðurinn ekki alveg fermdur í gær og því er blessað skrifborðið orðið lúið og þreytt (lesist hér ljótt) og ævinlega þvælst fyrir mér. Ég verð alveg að játa að ég hef gert mitt til að blessað borðið endi sína lífdaga en lítið orðið ágegnt en ég hef þó beðið þolinmóð eftir hinu gullna tækifæri.
Nú loksins, eftir hátt í töttögu ár, hafði ég sigur úr bítum.
Ekki það að skrifborðið endi lífdaga sína, langt því frá, heldur það að nú á það sko að fá heiðurssess í stofunni í Skeljagarðinum og húsbóndinn sitt horn (ok maður verður að gefa eitthvað eftir).
En almáttugur minn, ég fæ að pússa það upp og gefa því nýtt líf með málningu.
Loksins, loksins, loksins fæ Ég að ráða, eða var það ekki?"
Nú eru s.s. nokkrir dagar liðnir og þetta skrifborð, sem ég hef kallað kvikindið, ætlar að verða sagan endalausa hér á miðju stofugólfinu. Er s.s. búin að pússa það og skella fyrstu umferð á það og á meðan lakkið (Trip trap eldhúsborðplötulakk) var að þorna fékk ég hugmynd. Þar með stoppaði allt!
Einhvernveginn fékk ég þá flugu í höfuðið að til að láta kvikindið passa nú reglulega vel inn í stofuna þá væri alveg upplagt að setja höldur á skúffurnar.
Kvikindið eftir fyrstu umferð og eins og sjá má er ég búin að finna þessar líka gullfalegu höldur. Nú þarf að saga þennan nibba af skúffunum og það má guð vita hve lengi ég þarf að bíða eftir að eiginmanninum þóknist að taka upp tæki og tól til að gera það.
Þó ekki sé ég komin lengra þá er ég gríðarlega ánægð með það sem komið er og til að kvikindið fái uppreisn æru og sinn sess á heimilinu þá er ég alveg til í að bíða í nokkra daga í viðbót, en alls ekki meira en það.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Hildur
- Unknown
Vinsælast
-
Datt í hug þegar ég var að fara yfir myndirnar mínar og sá þessa að þó það sé ennþá nokkuð í jólin þá er akkúrat núna tíminn til að safn...
-
Stjörnumunstrið komið á niðursuðudósina Sáraeinfalt en smá undirbúning þarf áður en farið er að hamra á dósinni. Verð að segja það að...
-
Síðustu vikur hef ég skoðað hundruðir af híbýlum, stórum og smáum, gömlum og nýjum, fallegum og ljótum og eiginlega allt þar á milli. Við f...
Flokkar
- DIY (7)
- endurvinnsla (6)
- epli (2)
- Haust (1)
- húsgögn (3)
- hönnun (6)
- Ítalskt (1)
- jól (2)
- kaffi (1)
- marmilaði og mauk (2)
- Matur (4)
- myndir (2)
- sól (1)
- uppskriftir (4)
Knúið með Blogger.
0 ummæli:
Skrifa ummæli