fimmtudagur, 11. október 2012
Af eplum, appelsínum og októbersól
Eitt sem mér þykir alveg nauðsynlegt, það er að reyna að búa sem flest til sjálf. Þ.e. sérstaklega matinn minn. Síðan ég flutti hingað út til Danmerkur höfum við hjónin verið dugleg við að prufa okkur áfram með allra handa uppskriftir og aðferðir, búið til okkar eigin Chorizo pylsur (sem heppnuðust ekki alveg 100%) allar sósur, brauð (í 70% tilvika er heimabakað) og já bara nefna það. Haustið er líka akkúrat tíminn til að búa sér í haginn fyrir vetur komandi, sulta og svoleiðis og um að gera að nýta sér það að ávextir og grænmeti er oft á tíðum á góðu verði á þessum árstíma því gnótt er af uppskerunni eftir sumarið.
Allt innihald er sett í pott, suðan látin koma upp og hrært í. suðan lækkuð og látið malla í smá stund eða þar til eplin hafa meirnað og hægt er að pressa þau. Þá er makuð/smjörið látið malla í um hálftíma eða þangað til það hefur þykknað.
Sett í hreinar krukkur og geymt í ísskáp þangað til uppurið. helst í kæli í 7 til 10 daga, en ef þetta er eins hjá ykkur og hér á mínu heimili þá er Eplasmjörið löngu búið fyrir þann tíma. Himneskt á ristað brauð, á nýbakað bollur eða á pönnukökurnar. Það skemmir svo ekki að setja þetta í sæta krukku með þessum merkimiða sem ég bjó til og sem þú getur vistað og prentað út.
Það er svo miklu skemmtilegra að búa til eitthvað sjálfur og fara með það alla leið. Ekki gleyma umbúðunum, þær skipta máli. Lær hér fljóta með eplasmjörið mitt, eða alla vega eina mynd af einni krukku, komin með miðann, smá efnisbút á lokið og hampgarn utanum um. Miklu fallegra í ísskápnum svona og tala nú ekki um á borðið.
Í gær var s.s. niðursuða á dagskránni, eithvað sem stendur reyndar yfir enn því appelsínu, sítrónu, engifer marmilaðið er ekki tilbúið enn. Mér áskotnaðist hellingur af gömlu góðu eplunum, appelsínum og sítrónum og að sjálfsögðu fór ég að brasa við þetta í gær. Byrjaði ég á eplunum og langaði mikið til að búa til eitthvað sem smell passaði ofan á ristað brauð. Þar sem ég hef verið dugleg að sanka að mér dönskum matreiðslubókum upp á síðkastið fór ég og dró fram eina sem er bara með epla og peru uppskriftum. Þar á öftustu síðu fann ég uppskrift af Eplasmjöri (Apple Butter - Æblesmør) sem mér leyst svakalega vel á og þannig vildi til að ég átti allt í.
Innihaldið er eftirtalið:
Innihaldið er eftirtalið:
- 1,5 kg af blönduðum flysjuðum og kjarnahreinsuðum eplum, skornum í bita
- 350 gr. af fljótandi hunangi (hér notað Acacie)
- 200 gr. sykur (mæli með hrásykri, gefur skemmtilegra bragð)
- 1 tsk. kanill
- 1/2 tsk negull
- 2,5 dl epladjús (ég sleppti því eplin voru mjög safamikil)
Allt innihald er sett í pott, suðan látin koma upp og hrært í. suðan lækkuð og látið malla í smá stund eða þar til eplin hafa meirnað og hægt er að pressa þau. Þá er makuð/smjörið látið malla í um hálftíma eða þangað til það hefur þykknað.
Sett í hreinar krukkur og geymt í ísskáp þangað til uppurið. helst í kæli í 7 til 10 daga, en ef þetta er eins hjá ykkur og hér á mínu heimili þá er Eplasmjörið löngu búið fyrir þann tíma. Himneskt á ristað brauð, á nýbakað bollur eða á pönnukökurnar. Það skemmir svo ekki að setja þetta í sæta krukku með þessum merkimiða sem ég bjó til og sem þú getur vistað og prentað út.
Það er svo miklu skemmtilegra að búa til eitthvað sjálfur og fara með það alla leið. Ekki gleyma umbúðunum, þær skipta máli. Lær hér fljóta með eplasmjörið mitt, eða alla vega eina mynd af einni krukku, komin með miðann, smá efnisbút á lokið og hampgarn utanum um. Miklu fallegra í ísskápnum svona og tala nú ekki um á borðið.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Hildur
- Unknown
Vinsælast
-
Datt í hug þegar ég var að fara yfir myndirnar mínar og sá þessa að þó það sé ennþá nokkuð í jólin þá er akkúrat núna tíminn til að safn...
-
Stjörnumunstrið komið á niðursuðudósina Sáraeinfalt en smá undirbúning þarf áður en farið er að hamra á dósinni. Verð að segja það að...
-
Síðustu vikur hef ég skoðað hundruðir af híbýlum, stórum og smáum, gömlum og nýjum, fallegum og ljótum og eiginlega allt þar á milli. Við f...
Flokkar
- DIY (7)
- endurvinnsla (6)
- epli (2)
- Haust (1)
- húsgögn (3)
- hönnun (6)
- Ítalskt (1)
- jól (2)
- kaffi (1)
- marmilaði og mauk (2)
- Matur (4)
- myndir (2)
- sól (1)
- uppskriftir (4)
Knúið með Blogger.
0 ummæli:
Skrifa ummæli