þriðjudagur, 9. október 2012

Ný byrjun eður ei?

Var að hugsa, sat úti á svölunum hjá mér með morgunkaffið og rýndi á októbersólina, hugsa um hvort ekki væri komin tími til að drífa sig í að blogga aftur. Finnst hvort eð er svo gaman að skrifa og á vegginn á fécbókinni er ég farin að skrifa langa statusa sem slafra upp í að vera blogg. Já svo því ekki bara koma sér í gang aftur?!?!

Mundi svo eftir því að ég hafði búið til aðgang að þessari bloggsíðu meðan ég var í Multimedianáminu og því bara fínt að laga þetta aðeins til og láta vaða.

Hér ætla ég að safna saman öllu sem mér dettur í hug, uppskriftum, DIY verkefnum, því sem ég er bara að sísla við hverju sinni og þar sem ég er svo endemis mikil skorpukona þá spái ég því að hér komi til með að kenna ýmissa grasa. Nú ætla ég að skella í mig einu kaffibollanum í viðbót (á svölunum) og kíkja svo yfir myndirnar mínar og athuga hvort ég finni ekki eitthvað að setja hér inn, svona svo þetta verði ekki bara alls nakið svona til að byrja með.
Kaffisopinn í októbersólinni í Skeljagarðinum

Sjáumst á eftir!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Komin í favorites hjá mér ;)Inga Björk

Erna sagði...

Sæl vinkona, mikið varð ég nú ánægð þegar ég fann síðuna þína, alltaf svo gaman og gott að lesa greinarnar þínar. Og fá að nota smá brot af hugmyndunum þínum ;)
Bestu kveðjur, Erna

Blog Archive

Vinsælast

Flokkar

Knúið með Blogger.
Follow Me on Pinterest