miðvikudagur, 10. október 2012
Eitt lítið getur gert margt stórt
Datt í hug þegar ég var að fara yfir myndirnar mínar og sá þessa
að þó það sé ennþá nokkuð í jólin þá er akkúrat núna tíminn til að safna könglum í aðventukransinn. Þennan gerði ég fyrir 2 árum síðan, sá hann í Bo Bedre blaði og kolféll alveg hreint fyrir honum. Óhefðbundnir litirnir er eiginlega alveg eftir mínu höfði en að sjálfsögðu er hægt að gerann í hvaða lit sem er, engin takmörk þar. Það þarf einhvern helling af könglum í eitt stykki og svo slatta af tíma og þolinmæði í að mála þá en ef maður hefur aðstöðuna þá er líka alveg hægt að spreymála könglana. Við tókumokkur saman tvær vinkonur og gerðum sitt hvorn og bjuggum til allra handa skemmtilegheit fyrir alla fjölskylduna í því sambandi. Byrjuðum á því að drífa báðar fjölskyldurnar með í skógarferð, til að tína könglana, drekka kakó og steikja sykurpúða. Úr ferðinni varð alveg frábær 3ja tíma langt ferðalag í skóglendi norður Jótlands og allir fengu roð í kynnar og við uppskárum tvo höldupoka af könglum.
Næst var svo að þurrka könglana (já og losna við öll kvikindin sem leyndust inn í þeim). Allt var skellt í baðkarið og skolað vel, síðan lagt á dagblöð á gólfið og þurrkað í 2 daga.
Nú var s.s. komið að næsta skemmtiviðburði tengdum gerð aðventukransanna. S.s. núna var komið á dagskrá vetrarferð í sumarbústað, föndra saman og steikja kleinur fyrir aðventuna. Úr varð þessi fína helgi með kósýlegheitum og föndri, play station maraþoni og enn meira kakó og sykupúðaáti. Og upp úr krafsinu komu tveir flottir og öðruvísi aðventukransar á sitt hvort heimilið.
Alla vega þá skora ég á þig að finna nú eitthvað gott tilefni til að sameina jólaundirbúninginn og tíma með fjölskyldu og vinum. Það þarf ekkert að vera svona könglakrans en það er samt endalaust góð byrjun.
Kransinn er svo búin til með því að líma könglana, (fyrst mála/spreyja) á hamphring, með heitri límbyssu og undir kertin er nauðsynlegt að fjárfesta í eldheldum kertastjökum með pinna til að stinga ofan í.
Látið vita ef ykkur dettur í hug að endurvinna hugmyndina og gera eitthvað svipað saman með fjölskyldunni.

Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Hildur
- Unknown
Vinsælast
-
Datt í hug þegar ég var að fara yfir myndirnar mínar og sá þessa að þó það sé ennþá nokkuð í jólin þá er akkúrat núna tíminn til að safn...
-
Stjörnumunstrið komið á niðursuðudósina Sáraeinfalt en smá undirbúning þarf áður en farið er að hamra á dósinni. Verð að segja það að...
-
Síðustu vikur hef ég skoðað hundruðir af híbýlum, stórum og smáum, gömlum og nýjum, fallegum og ljótum og eiginlega allt þar á milli. Við f...
Flokkar
- DIY (7)
- endurvinnsla (6)
- epli (2)
- Haust (1)
- húsgögn (3)
- hönnun (6)
- Ítalskt (1)
- jól (2)
- kaffi (1)
- marmilaði og mauk (2)
- Matur (4)
- myndir (2)
- sól (1)
- uppskriftir (4)
Knúið með Blogger.
2 ummæli:
Ohhhh... Ég fékk flashback þegar ég sà kransinn hjà þér. Þetta var svo hrikalega skemmtilegt. Söknum ykkar mikið, verður eiginlega skrítið að hafa ykkur hvergi màlægt í jólaundirbúningnum
Segðu Guðný. Verulega illa gert að skilja mann svona eftir í öðru landi, vitandi ekkert hvernig maður á að hafa sér næstu vikur. Æ já við söknum ykkar líka, er akkúrat í Hals núna og finnst ég þurfa að gera eitthvað úr öllum þessum könglum sem eru hérna allt um kring.
Já þetta var eiginlega alveg frábært og entist okkur lengi og í margar góðar stundir.
Skrifa ummæli